AMPLIFYSTUDIO · REYKJAVÍK

White-label · Samstarf

Þinn eigin AI-byggjari. Þitt vörumerki.

Rektu vef-, app- og leikjabyggjara undir eigin nafni og léni, keyrðan á vél Amplify. Þú velur vélarnar, tungumálið og verðið á inneigninni, og selur hana beint til þinna viðskiptavina.

Hvað færðu

Allt sem þarf til að selja smíði.

Engin eigin innviði, engir eigin AI-samningar. Amplify sér um smíði, hýsingu og greiðslur, og þú einbeitir þér að viðskiptavinunum.

Eigið vörumerki

Nafn, merki, litir og eigið lén. Viðskiptavinir sjá aldrei Amplify.

Valfrjálsar vélar

Bjóddu upp á vefsíður, vefforrit, leiki eða allt saman, eftir því hvað hentar þínum markaði.

Hvaða tungumál sem er

Enska er sjálfgefin og vélþýðing er í boði á önnur mál. Leikir eru alltaf á ensku.

Eigin inneign

Þú ákveður pakka, verð og gjaldmiðil. Greiðslur fara í gegnum Stripe.

Gagnsætt uppgjör

Mánaðarlegt yfirlit yfir sölu, VSK, gjöld, notkun og útborgun.

Prufuaðgangur

Settu allt upp og prófaðu áður en þú opnar fyrir viðskiptavini.

Áskriftarleiðir

Mánaðargjald + heildsöluverð.

Verð eru án VSK. Heildsöluverð er reiknað á hverja inneign sem viðskiptavinir þínir nota. Söluverðið ákveður þú.

Game

Vörumerktur leikjabyggjari

19.900 kr.á mánuði · 14 kr. á inneign

  • 2D- og 3D-vafraleikir
  • Enskt leikjaviðmót
  • Eitt lén
Byrja prufu
Studio

Vefir, öpp og leikir

49.900 kr.á mánuði · 12 kr. á inneign

  • Allar þrjár vélar
  • Hvaða viðmótstungumál sem er
  • Þrjú lén
Byrja prufu
Agency

Mikið magn

149.000 kr.á mánuði · 9 kr. á inneign

  • Lægsta heildsöluverð
  • Tíu lén
  • Forgangur í smíði
Byrja prufu

Ferli

Í loftið á einum degi.

Uppsetningin fer öll fram í stjórnborðinu á amplify.is.

  1. Stofnaðu prufuaðgangVeldu nafn, slóð og áskriftarleið.
  2. Settu upp vörumerkiðMerki, litir, tungumál og hvaða vélar þú býður.
  3. Skilgreindu inneignarpakkaVerð og gjaldmiðill að eigin vali.
  4. Tengdu léniðBættu við léni og beindu því á Amplify.
  5. Opnaðu fyrir viðskiptaviniUppgjör birtist mánaðarlega í stjórnborðinu.

Spurningar og svör

Um white-label.

Hvað er white-label í Amplify?

White-label leyfir stofu eða fyrirtæki að reka eigin AI-byggjara undir eigin vörumerki og léni. Vélin er Amplify, en viðskiptavinir sjá aðeins nafn, merki og liti samstarfsaðilans.

Get ég valið hvort ég býð upp á vefi, öpp eða leiki?

Já. Þú velur vélarnar sem þú vilt bjóða: vefsíður, vefforrit, leiki eða allt saman, innan þeirrar áskriftarleiðar sem þú velur.

Á hvaða tungumáli er viðmótið?

Viðmótið er sjálfgefið á ensku og hægt er að vélþýða það á hvaða tungumál sem er. Leikir og leikjaviðmót eru alltaf á ensku.

Hvernig virkar inneignarsalan?

Þú ákveður sjálfur verð og gjaldmiðil á inneignarpökkum og selur þá þínum viðskiptavinum. Amplify reiknar heildsöluverð fyrir notaða inneign og mánaðargjald. Restin er þín.

Hvernig er gert upp?

Mánaðarlega: sala − VSK − greiðslugjöld − heildsöluverð notaðrar inneignar − mánaðargjald = útborgun til samstarfsaðila. Yfirlitið er alltaf sýnilegt í stjórnborðinu.

Get ég prófað áður en ég skuldbind mig?

Já. Þú getur stofnað prufuaðgang í stjórnborðinu og sett upp vörumerki, vélar, tungumál og inneignarpakka áður en þú opnar fyrir viðskiptavini.